Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (um atkvæðagreiðslu) :
    Hæstv. forseti. Það hefur orðið að samkomulagi þó svo kosning í útvarpsráð fari fram nú að þegar menntmrh. kemur heim verði umræða hér utan dagskrár um málefni Ríkisútvarpsins. Ég tel rétt að þetta komi fram við þessa atkvæðagreiðslu, hæstv. forseti.