Páll Pétursson (um atkvæðagreiðslu) :
    Frú forseti. Þar sem við stjórnarandstæðingar höfum nú um helgina verið fullvissaðir um að það ágæta fólk sem hér stendur til að kjósa í útvarpsráð muni ekki koma í bakið á hæstv. menntmrh. í störfum sínum sé ég ekkert á móti því að þessi kosning fari fram.