Sementsverksmiðja ríkisins

6. fundur
Mánudaginn 14. október 1991, kl. 14:08:00 (156)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Að gefnu tilefni vill forseti geta þess að hann hafði gert ráð fyrir því að slík beiðni, ef ákveðin yrði, kæmi fram frá þingflokksformönnum en ekki að forseti að fyrra bragði mundi lýsa því yfir að óskað væri eftir frestun. Þannig skildi hann þessar umræður.