Frumvarp um Sementsverksmiðju ríkisins

6. fundur
Mánudaginn 14. október 1991, kl. 14:15:00 (162)

     Umhverfisráðherra (Eiður Guðnason) :
     Virðulegi forseti. Það hvarflaði að sjálfsögðu aldrei að mér að hafa neitt við þessa ósk að athuga. Ég benti bara á að oft hefði verið á annan veg gert. Mín athugasemd fólst hins vegar eingöngu í því að ég óskaði eftir að fá að svara hv. þm. Kristínu Einarsdóttur og þeim spurningum sem hún hafði fyrir mig lagt og mér þykir miður að ég skyldi ekki hafa átt kost á því.