Ólafur Ragnar Grímsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Það er hin sérkennilega túlkun forseta á 56. gr. sem var tilefni þess að ég bað um orðið um þingsköp vegna þess að ég tel hana alranga og mjög hættulegt ef sú túlkun festist hér í sessi. Í greininni stendur, með leyfi forseta: ,,Forseti getur leyft þingmönnum að veita stutt andsvar við einstökum ræðum``, einstökum ræðum, ekki við neinni aðalræðu heldur einstökum ræðum, ,,strax og þær hafa verið fluttar.`` Og ég skal taka það fram að ég bað um orðið meira að segja undir ræðunni til þess að veita andsvar. ,,Skal þá sá er vill svara bera fram ósk um það við forseta. Andvari má einungis beina að máli ræðumanns en ekki öðru andsvari. Hvert andsvar``, hvert andsvar, virðulegi forseti, ,,má ekki taka lengri tíma en tvær mínútur og skal ræðumanni heimilt að svara því á tveimur mínútum. Heimilt er forseta að stytta ræðutíma hvers ræðumanns í þessum umræðum. Enginn má veita andsvar oftar en tvisvar sinnum hverju sinni. Orðaskipti í andsvörum mega ekki standa lengur en í fimmtán mínútur í einu.``
Virðulegi forseti. Mér sýnist alveg ljóst samkvæmt þessum texta að sá skilningur að einungis sé hægt að heimila einum manni, í þessu tilviki hv. þm. Ólafi Þ. Þórðarsyni, að veita andsvar við ræðu formanns þingflokks Alþfl. sé alls ekki í samræmi við þessa

grein þingskapa. Án þess að ég hafi nokkurn áhuga á að efna hér til einhvers orðaskaks við forseta, þá vil ég biðja forseta í fullri vinsemd að endurskoða túlkun sína á þessari grein.