Ólafur Ragnar Grímsson
:
Virðulegi forseti. Eins og hv. alþm. er kunnugt var það eindreginn vilji Alþingis fyrr á þessu ári að Íslendingar eignuðust öfluga björgunarþyrlu. Það mál var ítarlega rætt hér í þinginu og niðurstaðan varð sú að bæði var samþykkt sérstök tillaga og enn fremur var í lánsfjárlögum samþykkt heimild til fjármálaráðherra að ráðstafa 100 millj. í þessu skyni. Það liggur því alveg ljóst fyrir að Alþingi hafði fyrir sitt leyti samþykkt það að Íslendingar eignuðust björgunarþyrlu, öfluga björgunarþyrlu, þjóðin sjálf væri búin tækjum til að geta bjargað mönnum úr háska.
Í samræmi við þennan vilja Alþingis ákváðu ég og þáv. dómsmrh. að fela Landhelgisgæslunni að meta hvaða tegundir af þyrlum kæmu þar til greina. Skömmu eftir að Alþingi hafði gert þessar samþykktir kölluðu þáv. dómsmrh. og ég, sem þá gegndi embætti fjmrh., á forsvarsmenn Landhelgisgæslunnar til okkar (Forseti hringir.) og þeir fengu það verkefni að skila skýrslu. Í þessu skyni fór sérstök sendinefnd Landhelgisgæslunnar og embættismanna fjmrn. og dómsmrn. til Bandaríkjanna og Frakklands og skilaði síðan niðurstöðu þar sem það kom alveg skýrt í ljós hvert var mat þessara yfirmanna Landhelgisgæslunnar og embættismanna dómsmrn. og fjmrn. (Forseti hringir.) --- Ég er að ljúka máli mínu, virðulegi forseti, en ég tel alveg nauðsynlegt að þetta komi fram hér í umræðunum vegna þess að ég lýsi furðu minni á því að núv. dómsmrh. og núv. fjmrh. skuli hafa hætt við þessa meðferð málsins sem beið þeirra þegar þeir komu í ráðuneytin, þeir hafi nú gengið gegn vilja Alþingis með því að setja á laggirnar nefnd sem greinilega hafði bara þann tilgang að koma málinu í þann farveg að nú ættu að hefjast langvarandi viðræður við bandaríska herinn um að hann tæki að sér það hlutverk. Alþingi ályktaði um það að Íslendingar sjálfir ættu að annast þetta verk, Alþingi hefur aldrei ályktað um það að bandaríski herinn ætti að annast björgun íslenskra sjómanna. Það er þess vegna andstætt vilja Alþingis að núv. dómsmrh. og núv. fjmrh. hafi sett málið í þann farveg og furðulegt að sá maður, sem nú situr í stóli forseta og var formaður þessarar nefndar, Björn Bjarnason, skuli hafa stýrt því í þennan farveg.
Ég vil þess vegna mótmæla harðlega þessum vinnubrögðum. Þau eru algjörlega óhæf. Dómsmrn. og fjmrn. gætu nú þegar farið að vilja Alþingis í þessu máli ef þau kysu að gera svo og er mjög slæmt að hv. þm. Ingi Björn Albertsson, sem var eindreginn baráttumaður þessa máls, skuli ekki geta tekið þátt í þessum umræðum hér í þingsalnum.