Ólafur Ragnar Grímsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Hv. þm. Guðmundur Hallvarðsson kvartaði undan því hér áðan að samtök sjómanna hefðu ekki fengið að sjá þá skýrslu sem stjórnendur Landhelgisgæslunnar og embættismenn fjmrn. og dómsmrn. gerðu eftir að þeir höfðu lokið könnun á því hvaða tegundir af þyrlum kæmu hér helst til greina. Mér var nú ekki kunnugt um það að sjómannasamtökin hefðu óskað eftir því að fá að sjá þessa skýrslu. Alla vega gerðu þau það ekki við mig meðan ég var fjmrh. en mér finnst sjálfsagt að beina því til núv. dómsmrh. og fjmrh. að sjómannasamtökin fái þessar niðurstöður, alveg sjálfsagt mál, og enn fremur að allshn. Alþingis fái þær niðurstöður því að þetta voru hæfustu menn sem til eru hér á landinu sem við fengum til að meta þyrlukaupin. Við þurftum ekkert að fela það einhverjum öðrum utan þessa starfsvettvangs að gera það svo að niðurstaðan liggur fyrir. Ég vil eindregið hvetja til þess að samtök sjómanna og þingið sjálft fái þessa skýrslu í hendur og harma það að núv. ríkisstjórn skuli hafa ýtt öllu því starfi til hliðar og í staðinn hafið hér mjög flókinn leik tafa og fresta án þess að lýsa því yfir hvenær ríkisstjórnin hyggst tryggja það að Íslendingar eignist öfluga björgunarþyrlu.