Svavar Gestsson
:
Virðulegi forseti. Varðandi Reykholt vil ég segja það fyrst að ég held að það sé mjög mikilvæg yfirlýsing sem fram kom í máli hæstv. dómsmrh. hér áðan að aflétt verði óvissu um framtíð skólastarfs í Reykholti núna fyrir áramót þannig að samhliða afgreiðslu fjárlaga verði tekin ákvörðun um það hvernig því starfi verði háttað og þá sérstaklega það hvort ríkisstjórnin er tilbúin til samstarfs við Menningar- og fræðslusamband alþýðu um skólastarf í Reykholti í framhaldi af því starfi sem verið hefur. Sá undirbúningur er í raun og veru frá genginn. Það liggja fyrir drög að samkomulagi um það mál og það er að mínu mati afar mikilvægt að menn lendi þessu máli með Reykholt þannig að þar þurfi ekki að vera óvissa kannski árum eða a.m.k. missirum saman.
Í öðru lagi í sambandi við Reykjanes ætla ég ekki að segja margt um það núna nema ég vil gjarnan spyrja hæstv. ráðherra. Mér heyrðist í svarinu að það ætti að skipa nefnd til að fara í Reykjanesmálið sérstaklega. Það væri fróðlegt fyrir þingheim að vita hverjir eigi að vera í þeirri nefnd. Ég vil segja fyrir mitt leyti að mér finnst mjög sérkennilega að hlutum staðið í Reyjanesi (Forseti hringir.) og hefði talið eðlilegt að starfrækja nám í Reykjanesi sem hluta af hinum samhæfða framhaldsskóla á Vestfjörðum eins og ákveðið hefur verið í sambandi við Núpsskóla og rakið var hér áðan.
Varðandi Laugarvatn vil ég segja það að mér fannst fróðlegt að heyra að ráðuneytið vinnur áfram eftir þeim áætlunum sem gerðar höfðu verið um samhæfingu allra skólanna á Laugarvatni frá grunnskóla til háskólastigs. Ég held að það sé mjög mikilvægt að því verði þannig haldið áfram og tek svo að lokum undir það með hv. 6. þm. Norðurl. e. að það er nauðsynlegt að taka hér umræðulotu um skólamál strax og hæstv. menntmrh. sjálfur lætur svo lítið að láta sjá sig í þessum sal.