Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Áður en gengið er til dagskrár vill forseti mæla héðan úr þessum stól nokkur orð um þingsköp og framkvæmd þeirra. Tilefnið er umræða sú sem fram fór á þriðjudaginn í sl. viku utan dagskrár um málefni St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Við lok þeirrar umræðu kvöddu sér hljóðs þingmenn og gerðu m.a. að umtalsefni síðari mgr. 56. gr. þingskapa, um andsvör, sem eru eins og þingmönnum er kunnugt nýmæli í þingsköpunum. Þrír hv. þm. tóku síðan til máls undir þessu nýja formerki, andsvör, og var það í fyrsta sinn sem á þetta ákvæði þingskapanna reyndi. Forseti var þessu óviðbúinn en hafði reyndar hugsað sér að leyfa andsvör í utandagskrárumræðum hinum lengri ef um yrði beðið en hafði ekki hugleitt sérstaklega hina svokölluðu hálftíma umræðu að þessu leyti.
Forseti hefur nú lesið yfir umræðurnar og enn fremur hafa nokkrir hv. þm. rætt við forseta um þetta atriði og gert athugasemdir. Kann forseti því vel að þingmenn komi að máli við forseta um framkvæmd þingskapa. Forseti telur við nánari athugun að það geti ekki komið til greina að þingmönnum verði leyft að veita andsvör í umræðum utan dagskrár sem ekki mega standa lengur en í hálftíma þegar ræðutími málshefjanda er takmarkaður við þrjár mínútur og ræðutími annarra þingmanna og ráðherra er takmarkaður við tvær mínútur. Það má líka augljóst vera að umræðu sem standa á í hálftíma verður ekki haldið innan þeirra marka ef leyfð verða andsvör eftir hverja ræðu. Í athugasemdum um þetta nýmæli í frumvarpi til nýrra þingskapa sem samþykkt var á síðasta þingi segir:
,,Er megintilgangur þessarar breytingar,`` þ.e. að leyfa andsvör, ,,sá að gera umræður líflegri, skoðanaskipti hraðari og jafnframt að stytta umræður.``
Það er ljóst að umræður utan dagskrár skv. fyrri mgr. 50. gr., hálftíma umræðurnar, styttast ekki við það að leyfa andsvör. Auk þess er ræðutími í andsvörum jafnlangur og þingmenn hafa almennt í hinum styttri umræðum utan dagskrár.
Forseti hefur rætt þetta við þingflokksformenn og eru þeir á sama máli og forseti um þá túlkun framvegis að andsvör verði einungis leyfð þegar rædd eru lagafrumvörp, þingsályktunartillögur og skýrslur og í hinum lengri utandagskrárumræðum, en andsvör verða ekki leyfð í hálftíma umræðum utan dagskrár, ekki í umræðum um fyrirspurnir, í þingskapaumræðum eða þegar gerðar eru stuttar athugasemdir eða leiðréttingar, né heldur í hefðbundnum útvarpsumræðum þar sem röð flokka er fyrir fram ákveðin.
Þetta vill forseti taka fram vegna þeirrar umræðu sem varð á þriðjudaginn í síðustu viku.
Þess er líka rétt að geta að á fundum sl. miðvikudag og fimmtudag notfærðu ýmsir þingmenn sér þetta nýmæli þingskapa með eðlilegum hætti að dómi forseta og þannig náðist líka sá tilgangur sem áður er rakinn, að gera umræður líflegri, skoðanaskipti hraðari og jafnframt að stytta umræðurnar. Forseti telur mjög mikilvægt að þegar í upphafi takist að móta fasta framkvæmd þessa nýmælis þannig að allir hv. þm. geti vel við unað.
Þá vill forseti geta þess að á morgun í upphafi fundar verða á dagskrá þingsins í fyrsta sinn svokallaðar óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra skv. 7. mgr. 49. gr. þingskapa. Gefst þá þingmönnum kostur á að spyrja viðstadda ráðherra spurninga sem þeir svara á fundinum. Gert er ráð fyrir að fyrirspurnatími þessi taki um hálftíma. Um ræðutíma gilda sömu reglur og á venjulegum fyrirspurnafundum, þ.e. fyrirspyrjandi hefur tvisvar sinnum þrjár mínútur og ráðherra tvisvar sinnum fimm mínútur. Ekki verða leyfðar athugasemdir annarra þingmanna.
Forseti vill taka fram að hann er óánægður með ákvæði þingskapa um ræðutíma í þessum umræðum og gerði tilraun til að ná nokkurs konar heiðursmannasamkomulagi um styttri ræðutíma en það tókst ekki. Samt sem áður hefur forseti ástæðu til að ætla að þingmenn og ráðherrar stilli máli sínu mjög í hóf þannig margir þingmenn komist að, en þeir verða aðeins tveir ef ræðutími hvers verður fullnýttur. Fyrirkomulag umræðna verður þannig að þingmenn kveðja sér hljóðs með venjubundnum hætti en verða auk þess beðnir að rísa úr sæti til að auðvelda forseta yfirsýn yfir þá sem biðja um orðið. Forseti velur fyrirspyrjendur en þeir ráða því til hvaða ráðherra þeir vilja beina máli sínu. Fyrirspyrjandi má gera stutta athugasemd við svar ráðherra og ráðherra má tala í annað sinn. Forseti vill ítreka þá ósk sína að fyrirspurnir verði stuttar, um eitt eða tvö efnisatriði, og ekki síður að svör ráðherra verði stutt og hnitmiðuð. Með þeim hætti eru mestar líkur á að þetta nýmæli sem tekið var upp í þingsköpum á sl. vori reynist góð og skemmtileg viðbót í starfi okkar hér í þessum sal.
Forseta hefur borist tilkynning frá skrifstofunni um að á morgun verði til andsvara eftirtaldir ráðherrar: Forsrh. Davíð Oddsson, fjmrh. Friðrik Sophusson, samgrh. Halldór Blöndal, umhvrh. Eiður Guðnason og heilbrrh. Sighvatur Björgvinsson.