Svavar Gestsson
:
Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli á þeirri athyglisverðu umræðu sem fram hefur farið að frumkvæði tveggja þingmanna Alþb. og með eindregnum stuðningi Alþfl. Það er mjög sjaldgæft að það gerist í þingsölum að þingmenn stjórnarflokks gangi fram með þeim hætti sem hér hefur gerst til sérstaks stuðnings við þingmenn stjórnarandstöðuflokks. Ég tel það auðvitað sérstaklega þakkarvert og það sýnir að hér er um að ræða gott mál sem á breiðan stuðning og líklegt að það verði samþykkt og það verði niðurstaða þingsins að lokum sem lagt er til í tillögu hv. þm. Jóhanns Ársælssonar og Steingríms J. Sigfússonar.
Það er mjög athyglisvert að hæstv. heilbrrh. skuli gefa þessa yfirlýsingu. Það bjuggust reyndar flestir við því þegar hann kom í ræðustólinn undir þessum umræðum að hann myndi ætla að gefa almennar spítalayfirlýsingar til að gleðja þjóðina, eins og hann hefur gert undanfarnar mánuði, en það varð ekki sem sagt. Aldrei þessu vant vildi hann blanda sér sérstaklega í umræðu um gæðamál í sjávarútvegi og er það út af fyrir sig sérstakt fagnaðarefni. En það er þó einkum athyglisvert hvaða tíma hann nákvæmlega velur til að gefa þessa yfirlýsingu. Ég sá að hann leit mjög gaumgæfilega yfir ráðherrastólana um leið og hann steig í ræðustólinn og komst að þeirri niðurstöðu, sem er athyglisverð, að enginn ráðherra Sjálfstfl. var viðstaddur þegar hann gaf þessa yfirlýsingu. Það var þess vegna allt í lagi fyrir hann að flytja hana með þeim hætti sem hann flutti hana hér áðan.
Ég kvaddi mér einungis hljóðs, virðulegi forseti, til að vekja athygli á þeirri athyglisverðu staðreynd að Alþfl. hefur hér hlaupið undir bagga með Alþb. Mér þykir a.m.k. vænt um að svo skuli komið fyrir Alþfl. að hann leiti á okkar náðir og ég vona að það verði einnig á öðrum sviðum, t.d. í heilbrigðis- og tryggingamálum.