Gæðamál og sala fersks fisks

11. fundur
Mánudaginn 21. október 1991, kl. 14:08:00 (314)

     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
     Virðulegi forseti. Gæðamál sjávarfangs eru ekki flokksmál Alþb. og hafa aldrei verið. Hins vegar er það mjög skiljanlegt þegar það gerist að Alþb. lýsir skynsamlegum skoðunum að það sé mikil ástæða til þess að vekja á því athygli. Það er ekki á hverjum degi, virðulegi forseti, sem alþýðubandalagsmenn tala eða hegða sér skynsamlega á Alþingi. Ég er alveg fús til þess að vekja athygli á því ef slíkt skyldi koma fyrir aftur á þessu þingi. Ég á satt að segja ekki von á því.