Kristinn H. Gunnarsson
:
Virðulegi forseti. Það hefur ekki farið fram hjá mér frekar en mörgum öðrum að ráðherrarnir hafa verið að fá sér nýja bíla við sitt hæfi. Það hefur líka vakið athygli mína að þeir bílar hafa margir hverjir ef ekki flestir verið keyptir hjá Heklu hf. Því vil ég spyrja hæstv. fjmrh. hvers vegna bifreiðarnar eru keyptar þar og í öðru lagi hvers vegna ekki fór fram útboð á þessum bílakaupum þannig að hin frjálsa samkeppni fengi að njóta sín.