Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Vegna ummæla hæstv. menntmrh. áðan um það að málefni Lánasjóðsins hafi komið til umræðu og ummæli þingmanna um þær hugmyndir sem sú nefnd sem hann skipaði hefur lagt fram finnst mér rétt að taka fram að þær hugmyndir eru unnar af nefnd sem fulltrúar nemenda eiga engan þátt í. Þeir hafa ekki fengið að vera með í þeirri stefnumörkun sem þar kemur fram. Ef á að vinna upp úr þeim tillögum einhverja breytingu á úthlutunarreglum og fleira vænti ég þess að nemendur eigi þá fulltrúa í þeim hópi.