Ólafur Ragnar Grímsson
:
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir það sem hér hefur komið fram að það sætir undrun hvernig haldið er á málum. Það er rangt hjá hæstv. fjmrh. að nóg sé að taka umræðuna um Evrópskt efnahagssvæði upp þegar þingið kemur saman aftur. Umræðan var í miðjum klíðum, virðulegi ráðherra. Og eins og hér hefur komið fram, ( Fjmrh.: Það má halda henni áfram.) Já, halda henni áfram, það var kannski réttara orðalag eða svo við séum alveg nákvæmir, að utanrrh. haldi áfram að svara þeim spurningum sem til hans var beint. Eins og hér hefur komið fram af hálfu hv. þm. Kristínar Einarsdóttur hafði einn þingflokkur á Alþingi ekki fengið eitt einasta svar frá utanrrh. við þeim spurningum sem sá þingflokkur hafði borið fram.
Það var samkomulag um það og stjórnarandstaðan sýndi mikinn skilning og lipurð í því máli þegar við féllumst á að umræðutími sl. miðvikudag yrði takmarkaður. Fallist var á að hver þingflokkur hefði í fyrstu aðeins hálftíma. Til þess að greiða enn frekar fyrir ríkisstjórninni í þessum efnum var á það fallist að í annarri umferð hefði hver flokkur bara korter. Þannig sýndi stjórnarandstaðan mikinn skilning og lipurð í að greiða fyrir því að þetta gæti gerst með eðlilegum hætti. Ég vil nefna í þessu sambandi að það var utanrrh. sem óskaði eftir því að flytja þinginu skýrslu um málið. Það var ekki stjórnarandstaðan sem knúði á um að þessi umræða færi fram á miðvikudag heldur var það ríkisstjórnin sem ýtti út af dagskránni öllum þeim frv., sem átti að ræða á þeim degi, til þess að utanrrh. gæti flutt sína skýrslu. Það er auðvitað fullkomlega óeðlilegt, ólýðræðislegt og óþingræðislegt að sú umræða sé stöðvuð í miðjum klíðum, í miðri ræðu ráðherrans og síðan líði tæpar tvær vikur, virðulegi forseti og hæstv. fjmrh., þangað til utanrrh. heldur áfram ræðu sinni og getur hafið svör sín til Kvennalistans. Það er sérstaklega óþingræðislegt og ólýðræðislegt vegna þess að þingflokkur Kvennalistans er sá þingflokkur hér á Alþingi sem samfleytt hefur tekið mjög gagnrýna afstöðu í þessu máli. Þess vegna er það sérstaklega nauðsynlegt að sá þingflokkur geti átt viðræður við utanrrh.
Þessu til viðbótar, virðulegi fjmrh., hafa ráðherrar í ríkisstjórninni kosið að fara með málið utan þings í fullbúna umræðu. Það var ekki aðeins það að utanrrh. léti þingið hætta fundi klukkan sjö sl. miðvikudag, það var ekki þingið sem óskaði eftir því heldur var það vegna þess að utanrrh. hafði sjálfur boðað fund á Hótel Sögu, sem hafði forgang fram yfir þingið. Við gerðum út af fyrir sig ekki athugasemdir við það, við vildum ekki af sanngirni okkar leggja stein í götu ráðherrans. Síðan efna forsrh. og sjútvrh. til almenns borgarafundar næsta dag á Hótel Sögu og við sýndum líka þá sanngirni, hæstv. fjmrh., að halda áfram hér þingstörfum og umræðum í þingsalnum þrátt fyrir það að forusta Sjálfstfl. væri með borgarafund á sama tíma úti á Hótel Borg. Við gerðum ekki athugasemd við það. En það er auðvitað fullkomlega óeðlilegt að ríkisstjórnin og stjórn þingsins setji stjórnarandstöðuna og sérstaklega þingflokk Kvennalistans í þá aðstöðu að hann verði að bíða hér í hálfan mánuð eftir því að heyra svör ráðherrans og geta rætt um þau vegna þess að ríkisstjórnin hefur kosið að taka önnur frv. hér á dagskrá í dag. Það er auðvitað ástæðan, virðulegi forseti. Það er hin raunverulega ástæða þess að ríkisstjórnin og fjmrh. hafa krafist þess að fá önnur frv. hér á dagskrá í dag. Ég vil mótmæla því mjög harðlega að þetta sé gert. Ég vil leggja það til við virðulegan forseta að það verði kannað hvað dvelur utanrrh. Ég sá í blöðum í morgun auglýsingar um það --- ég er að ljúka máli mínu, virðulegi forseti, --- að hann er að fara í fundaherferð svona vítt og breitt um landið og nú nú fer ég fram á að gert verði fundarhlé og það verði kannað hvort virðulegur utanrrh. getur ekki mætt hér til fundar. Ef hann getur það þá verði settur nýr fundur með skýrslu utanrrh. á dagskránni og við getum haldið áfram umræðunni, a.m.k. á þann veg að þingflokkur Kvennalistans fái svör við spurningum sínum og svo getum við skoðað það síðar í dag hvort umræðum verður haldið áfram um önnur mál.
Ég vil svo að lokum, virðulegi forseti, segja það vegna þess að við erum bæði þingmenn fyrir Reykjaneskjördæmi, að slíka tillitssemi sýnum við sumir ríkisstjórninni og stjórn þessa þings að þótt boðaður sé í dag ársfundur Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum, sem þingmenn Reykjaneskjördæmis almennt hafa skyldur til að sækja og er greinilegt að sumir stjórnarþingmenn hafa e.t.v. útvegað sér fjarvistarleyfi til að geta verið þar í dag,

erum við, stjórnarandstæðingar í Reykjaneskjördæmi, hins vegar mættir í þingsalnum til þess að sinna skyldum okkar sem stjórnarþingmennirnir gera ekki.