Ólafur Ragnar Grímsson
:
Virðulegi forseti. Ég verð því miður að leiðrétta þau orð forseta að hæstv. utanrrh. hafi verið tilbúinn að ljúka umræðunni um Evrópskt efnahagssvæði sl. miðvikudag og það hafi verið einstakir þingmenn sem ekki hafi viljað gera það. Ég vil nú í mikilli vinsemd biðja virðulegan forseta að túlka ekki veruleikann með þessum hætti. Það vita auðvitað allir hér að þingmenn stjórnarandstöðunnar voru tilbúnir til þess að halda umræðunni áfram allt miðvikudagskvöldið. En hæstv. utanrrh. hafði boðað almennan borgarafund kl. 8.30 og við virtum það. Við hefðum auðvitað alveg getað, virðulegi forseti, knúið á um það að utanrrh. hætti við borgarafund sinn og mætti í þinginu til að halda áfram þeirri umræðu sem hann hóf, en við gerðum það ekki. Þess vegna vil ég biðjast undan því að af forsetastól sé þetta túlkað á þann veg að hæstv. utanrrh. hafi verið tilbúinn að halda áfram umræðunni á miðvikudaginn en það hafi strandað á þingmönnum stjórnarandstöðunnar.
Það sem kom hins vegar í ljós var að það samkomulag sem formenn þingflokka og forseti höfðu rætt, og alveg rétt frá greint af hv. þm. Geir H. Haarde, stóðst engan veginn í reynd. Það var allt of þröngur stakkur fyrir þessa umræðu. Meira að segja svo þröngur að ýmsir þingmenn sem hafa gegnt veigamiklu hlutverki í ferli þessa máls, eins og hv. þm. Halldór Ásgrímsson, komust ekki að í umræðunni Og hv. þm. Steingrímur Hermannsson, fyrrv. forsrh., sem ásamt núv. utanrrh. er kannski sá maður sem mest hefur starfað að þessum málum á síðustu tveimur árum, átti engan kost að svara ásökunum utanrrh. í sinn garð. Svo það var auðvitað alveg ljóst að það samkomulag sem menn höfðu gert stóðst ekki í reynd. Við þingmenn stjórnarandstöðunnar sýndum fullan skilning á að leysa úr því vandamáli. Þess vegna bið ég hv. þm. Geir H. Haarde að halda ekki þannig á málinu að hér hafi bara verið gert með einföldum hætti eitthvert samkomulag og þar með hafi málið verið afgreitt. ( GHH: Fyrir daginn í gær og í dag.) Já, fyrir daginn í gær og í dag. Það má vel vera að það hafi verið gert í gærmorgun. En þá held ég að menn hafi ekki áttað sig á því að ráðherrar í ríkisstjórninni, með forsrh., sjútvrh. og utanrrh. í fararbroddi, mundu halda út á völlinn með alls konar ásakanir í garð okkar hér inni á þinginu eins og t.d. hæstv. sjútvrh. gerði í minn garð á almennum borgarafundi í gær og eins og hæstv. forsrh. gerði í minn garð á almennum borgarafundi í gær. Það er auðvitað fullkomlega óeðlilegt að ráðherrarnir séu að fara út í þjóðfélagið með þá umræðu sem þeir vilja ekki taka þátt í hér í þingsalnum. Það er þess vegna einlæg ósk okkar að fá ráðherrana í þingsalinn til að geta talað við þá vegna þess að það er óásættanlegt að maður þurfi að mæta á borgarafundi hjá Sambandi ungra sjálfstæðismanna til að tala við ráðherrana um málið. Ef ráðherrarnir hefðu sýnt þann þroska að vera ekki með ásakanir af þessu tagi á meðan umræðan stóð hér í þinginu væri engin ástæða til að gera athugasemd við það. En þeir kusu að gera það ekki.
Þess vegna, virðulegur forseti, fer ég fram á að þessum fund verði frestað og við fáum það alveg á hreint. Hvenær verður þess umræða í dag? Ég ætla ekki að eiga það eitthvað óljóst að hún verði einhvern tímann síðdegis. Ég vil fá það alveg á hreint. Hvenær verður umræðan? Hvað verður hún löng? Með hvaða hætti verður hún? Ég vil fá það alveg á hreint að hæstv. forsrh. verði í umræðunni líka. Það er alveg óhjákvæmilegt eftir þá ræðu sem hann flutti á borgarafundi Sjálfstæðisflokksins í gær, og að frá þessu verði gengið í fullu samkomulagi. Það er ekki hægt að eiga það undir óljósri þróun mála fram eftir degi þannig að kannski utanrrh. birtist hér kl. 6 og segi jæja, nú er ég mættur, nú getið þið haldið áfram o.s.frv. Vinnubrögð af því tagi eru fullkomlega (Forseti hringir.) óviðunandi. Ég fer þess vegna fram á það, virðulegi forseti, að að lokinni þessari þingskapaumræðu verði fundinum frestað og gengið verði frá málinu og því komið í fastar skorður og svo getum við haldið áfram.