Árni Johnsen
:
Virðulegi forseti. Það eru allmörg íþróttahús í landinu sem geta tekið á móti leikjum á borð við þá sem fara fram í handknattleikskeppni á heimsmeistaramóti. Vellirnir eru góðir. Vandamálið er pláss fyrir áhorfendur.
Þegar Svíar og Íslendingar kepptu um heimsmeistaramótið 1993 komu Svíar því inn í reglur Alþjóðahandknattleikssambandsins að það þyrfti að vera pláss fyrir 7.000 manns í sæti. Þeir unnu síðan 1993-mótið á hlutkesti.
Það kemur ekki á óvart að Kópavogskaupstaður hefur orðið að víkja frá þeirri upphaflegu áætlun að byggja fyrirhugaða íþróttahöll. Annaðhvort hefur fyrrv. vinstri meiri hluti í bæjarstjórn Kópavogs ákveðið að undirbjóða í verkið í trausti þess að fá síðar meiri peninga eða hæstv. fyrrv. vinstri ríkisstjórn hefur ákveðið að knésetja bæjarstjórn Kópavogs á þeim tíma til þess að taka að sér verk sem hún gæti ekki staðið við. ( SvG: Hvaða aðferð var notuð við knésetninguna?) Það kynni að vera. Það er því ekki óeðlilegt að sú slæma staða sem nú hafi komið upp, því vissulega hlýtur það að vera keppikefli allra að stuðla að því að menn geti staðið við fyrirheit og vonir um að heimsmeistaramótið í handbolta geti farið fram hér á landi 1995.
Það er líka ljóst að hæstv. forsrh. og hæstv. menntmrh. hafa sagt að dyr séu opnar til viðræðna í þeim efnum. Það hlýtur að blasa við hjá Handknattleikssambandi Íslands að hafa forustu um að taka málið upp aftur. Það er HSÍ sem ætlaði sér að halda heimsmeistaramótið og njóta til þess fulltingis innlendra aðila. Það má segja, virðulegi forseti, að dyr standi opnar á tvennan hátt. Annaðhvort hlýtur HSÍ að kanna möguleika á því að fækka sætum í því húsi sem aðalúrslitaleikur á að fara fram í, því við það er bundin talan 7.000, eða að kannað sé hvort hægt er að ná öðrum samningum um byggingu húss og víst er það mest spennandi.