Hæstv. forseti. Það er nú orðið dálítið kvöldsett. Klukkan er komin fram yfir miðnætti. Þó auðvitað sé freistandi að halda áfram þegar stjórnarliðar eru komnir hér í hár saman og sannarlega voru þau hér áðan, hæstv. félmrh. og hv. þm. Einar Kristinn, eins og segir í vísunni góðu: ,,Nú er eins og hundur hund hitti á tófugreni.``
En ég hef lítið gaman af átökum þeirra sem í kærleika vilja búa. Þess vegna er mér það mikið mál vegna morgundagsins að vita hvenær þessari umræðu lýkur.
Hér hefur farið fram mjög málefnaleg umræða um byggðamál, mikilvæg umræða. Hér hefur engin ræða verið léleg á þessum degi þótt deila megi um efni þeirra. Hér hafa
vissulega komið fram meiningar manna sem þarf að ræða. Það munu einir tíu þingmenn hafa haldið ræður í dag, það munu sjö enn vera á mælendaskrá og margir munu enn kveðja sér hljóðs undir þessari umræðu. Því þykir mér það ófært að eiga að ræða þennan mikla málaflokk í skjóli nætur.
Það er líka annað sem ég verð að gera athugasemd við ef þessi umræða á að halda áfram. Það er orðið fáliðað hér í þinghúsinu, það mun þriðjungur þingmanna vera viðstaddur þessa umræðu og það er ljóst að þynnist mjög á ráðherrabekkjum. Að vísu hillir í hæstv. forsrh. þarna í horninu í hliðarherbergi, tveir aðrir ráðherrar munu vera í húsinu. Þeir menn sem ekki síst þarf að ræða við í þessari umræðu eru báðir farnir heim. Hæstv. samgrh. gekk á braut fyrir klukkustundu síðan og sjálfur formaður Byggðastofnunar er hér ekki viðstaddur umræðuna. Ég geri því skýlausa kröfu til þess að fundinum verði frestað. Hér er mikilvægari umræða en svo að hún fari fram undir þeim kringumstæðum að bjóða þingheimi upp á það að halda næturfund á fyrsta stigi sem þessi umræða fer fram. Ég bið hæstv. forseta og forsrh. að gera sér grein fyrir því að vinnudagur margra manna sem hér eru í þessu húsi hefst eftir sjö klukkustundir á nýjum degi.