Jón Kristjánsson
(um þingsköp)
:
Herra forseti. Ég vil taka undir það að hér hefur farið fram góð og gagnleg umræða í dag og það á áreiðanlega eftir að koma margt fram hjá þeim sem eftir eiga að tala sem er gott og gagnlegt innlegg í umræðu um byggðamál. Ég er einn af þeim sem eru á mælendaskrá en hins vegar hafa þær yfirlýsingar gengið hér í dag, bæði innan þessa salar og utan, að það er nauðsynlegt fyrir mig að eiga orðastað við hæstv. samgrh. sem gaf yfirlýsingar utan þings sem sagt var frá í fréttum í kvöld sem varða byggðamál mjög sterklega. Ég mótmæli því að taka hér til máls án þess að hann sé viðstaddur. Það er einnig nauðsynlegt að eiga orðastað við formann stjórnar Byggðastofnunar og ég mótmæli því harðlega að þessari umræðu verði haldið áfram nema þeir aðilar sem byggðamál varða og við þingmenn þurfum að eiga orðastað við séu mættir. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara

að kalla þessa menn hingað því að þeir hafa vikið af fundi og vafalaust sofnaðir eins og hv. Skagfirðingur Stefán Guðmundsson segir. En ég geri kröfu til þess að umræðunni verði frestað nema þá að þeir aðilar verði kallaðir til sem við þurfum að eiga orðastað við.