Hjörleifur Guttormsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það hefur verið sagt að nokkuð greini á í málflutningi manna í ríkjum sem standa að þessum samningi, það séu sumir sem geri sig seka um það að vera að markaðsfæra þennan samning miðað við heimamarkaðinn en ekki með því að reyna að leggja hlutlægt mat á málið eða bera það fram í ljósi samningsins sem heildar. Mér finnst hæstv. utanrrh. gera sig ítrekað sekan um að stunda hér markaðsfærslu inn á við gagnvart heimamarkaði og stytta sér allverulega leiðina.
Að því er snertir réttarreglurnar og aðstöðu dómstóla til þess að dæma þykja mér það tíðindi ef ekki á að gera ráð fyrir að dómstólar miði við þann grundvöll sem þessi samningur á að lögfesta, þann sama grundvöll og innri markaður Evrópubandalagsins er reistur á, lagasviðið um fjórfrelsi og að haga störfum sínum og draga ályktanir út frá þeim markmiðum. Þau eru ítrekuð í aðfaraorðum þessa samnings og það væri mjög skrýtið ef um það ættu að gilda önnur viðhorf fyrir dómi sem er felldur af Evrópudómstólnum sjálfum en gerist innan þess dómstóls. Svo eru það engin tíðindi þó að sagt sé að auðvitað séum við ekki með allt svið Rómarsáttmálans undir í þessum samningi, heldur hluta þess, og að því leyti er það rétt sem ráðherrann sagði, að út fyrir ramma þessa samnings munu dómstólar ekki fara. En ramminn er víður og viðfangsefnin skýr og þau markmið sem verið er að skrifa upp á.