Halldór Ásgrímsson
:
Virðulegur forseti. Ég þakka umburðarlyndið. Hæstv. samgrh fullyrti að við hefðum haldið því fram að þessar framkvæmdir mættu bíða fram á næstu öld. Það hefur enginn sagt það hér við þessar umræður og hæstv. samgrh. ætti fremur að draga eitthvað af ummælum sínum til baka og nota tíma sinn í það en að bera á okkur sakir algjörlega að tilefnislausu.