Framhald umræðna um skýrslu forsætisráðherra um Byggðastofnun

23. fundur
Mánudaginn 11. nóvember 1991, kl. 13:30:00 (828)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
     Herra forseti. Fyrir þessum fundi liggur mikil dagskrá. Þar er þó hvergi að sjá að ætlunin sé að halda áfram umræðum um skýrslu forsrh. um Byggðastofnun. Nú hefur umræðan um Byggðastofnun ekki verið svo lítil í fjölmiðlum að undanförnu að eðlilegt má telja að því verði hraðað að taka þetta mál á dagskrá og þeirri umræðu fram haldið sem hér var stöðvuð á sínum tíma.
    Ég óska eftir því að forseti þingsins geri grein fyrir því hvenær ætlunin er að þetta mál verði tekið á dagskrá og umræðunni fram haldið.