Jóhann Ársælsson
:
Virðulegi forseti. Ég mun ekki lengja þessa umræðu. Ég fæ tækifæri til að fjalla um málið í sjútvn. Mig langar þó að segja að ég vil hafa um það fullan fyrirvara að styðja almennt við mál af þessu tagi einfaldlega vegna þess að ég tel ekki að skyldusparnaður, eins og um er að ræða með þessum sjóði, eigi að vera viðtekin regla í þjóðfélaginu. Mér finnst að ríkið eigi að tryggja stöðugleika með öðrum hætti en þeim að gera einhverjum fyrirtækjum að safna fyrningum og senda það síðan út þegar ríkinu lystir. Það er reyndar þegar komið í ljós að þetta fé hefur ekki legið á lausu handa þeim fyrirtækjum sem hafa þó riðað á barmi gjaldþrots og þess vegna held ég að það sé full ástæða til þess að setja spurningarmerki við þennan sjóð.
Núna þegar þessi aflaskerðing hefur riðið yfir og menn sjá fram á áframhaldandi taprekstur hjá mörgum sjávarútvegsfyrirtækjum hafa margir forráðamenn þeirra látið a.m.k. mig heyra að þeim finnist undarlegt að eiga inni í sjóðum á sama tíma og þeir geta ekki staðið í skilum annars staðar. Það er umhugsunarvert hvort ekki eigi að bregðast snarlega við og breyta þannig að menn geti nýtt sér þetta fé.
Ég ætla ekki, eins og ég sagði áðan, að lengja umræðuna hér. Við fáum tækifæri til að fjalla um þetta áfram. Ég tel reyndar að góðra gjalda vert sé að reyna að hafa áhrif á að fé, sem tekið er hvar sem er á landinu, sé ávaxtað á þeim stað þar sem það verður til og það er út af fyrir sig góð hugsun í þessu frv. að mínu viti.