Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins

23. fundur
Mánudaginn 11. nóvember 1991, kl. 15:22:00 (851)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
     Ég vil að gefnu tilefni upplýsa hæstv. sjútvrh. um það að hann hefur tvisvar fengið tækifæri til þess að gefa andsvör í þessari umræðu. Ég gaf hv. 3. þm. Vesturl. tækifæri til að gefa andsvar á nákvæmlega sömu forsendum og ég hef gefið hæstv. sjútvrh. hingað til.