Virðulegi forseti. Hæstv. sjútvrh. kaus að fara með rangt mál áðan og lýsa fyrir þinginu lögunum um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins á þann veg að sú lýsing er ekki á neinn hátt í samræmi við veruleikann. Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon gerði athugasemd við þennan málflutning hæstv. ráðherra sem kom þá upp hér aftur og endurtók fyrri fullyrðingar. Nú sé ég að hæstv. ráðherra er búinn að fá í hendur lögin um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins og er óskandi að hann lesi þau vandlega.
Lögin eru alveg skýr. Við sem að þeim stóðum höfðum í huga tvíþætt markmið. Annars vegar að gera sjávarútveginn á Íslandi hagkvæmari með því að úrelda skip. Hins vegar að aðstoða byggðarlög sem höfðu misst aflaheimildir vegna tímabundinna erfiðleika. Þetta var hinn tvíþætti tilgangur laganna um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins. Hæstv. sjútvrh. hefur hins vegar ákveðið í fjárlagavanda ríkisstjórnarinnar að gera Hagræðingarsjóð og sölu aflaheimilda að almennri skattheimtu til þess að fjmrh. geti strikað rekstrarkostnaðinn við nokkrar stofnanir í sjávarútveginum út úr gjaldahlið fjárlagafrv. Þessum mönnum væri nær að játa það hreinlega heldur en vera með einhverjar hundakúnstir í trausti þess að hvorki við né þjóðin sjáum í gegnum þær. Auðvitað liggur það alveg ljóst fyrir að til þess að koma fjárlagafrv. saman ákvað núv. hæstv. ríkisstjórn að leggja sérstakan skatt á sjávarútveginn, venjulegan skatt til að standa undir venjulegum rekstrarkostnaði ríkisstofnana.
Í 1. gr. laganna um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins stendur, með leyfi hæstv. forseta, að sjóðurinn hafi tvíþætt hlutverk: ,,að stuðla að aukinni hagkvæmni í útgerð og koma til aðstoðar byggðarlögum er standa höllum fæti vegna breytinga á útgerðarháttum.`` Síðan segir:
,,Sjóðurinn skal stuðla að aukinni hagkvæmni með því að laga stærð og afkastagetu fiskiskipastólsins að afrakstursgetu nytjastofna sjávar. Í þessu skyni skal sjóðurinn kaupa fiskiskip sem kunna að vera til sölu á hverjum tíma og selja þau úr landi eða eyða þeim og ráðstafa veiðiheimildum sem honum eru framseldar eða úthlutað er til hans. Þá er sjóðnum heimilt að veita styrki til úreldingar skipa enda sé tryggt að í stað hinna úreltu skipa komi ekki ný skip í fiskiskipaflotann eða afkastageta flotans aukist með öðrum hætti.
Sjóðurinn skal koma til aðstoðar einstökum byggðarlögum með því að efla vinnslu sjávarfangs á þeim stöðum þar sem straumhvörf hafa orðið í atvinnulífi vegna sölu fiskiskipa. Í þessu skyni getur sjóðurinn framselt tímabundið veiðiheimildir enda verði aflanum landað til vinnslu í viðkomandi byggðarlagi.``
Þetta er alveg skýrt. Þetta er annars vegar sjóður sem á að auka hagkvæmni í sjávarútvegi með því að minnka stærð fiskiskipastólsins og hins vegar sjóður sem á að aðstoða byggðarlög sem hafa misst aflaheimildir. Þetta er ekki sjóður til þess að standa undir gjaldahlið fjárlagafrv. Það var aldrei hugsunin, datt ekki nokkrum manni í hug. Þess vegna bið ég hæstv. sjútvrh. að vera ekki að endurtaka þá vitleysu oftar hér í stólnum.
Í 9. gr. laganna segir, með leyfi hæstv. forseta: ,,Sjóðurinn veitir aðstoð sína til eflingar vinnslu sjávarfangs í byggðarlögum, er höllum fæti standa, með því að framselja veiðiheimildir sem honum hafa verið úthlutaðar í því skyni skv. 5. gr. Aflaheimildirnar skulu framseldir gegn því skilyrði að aflanum verði landað til vinnslu í því byggðarlagi sem aðstoð hefur verið samþykkt við. Skal sveitarstjórn í viðkomandi byggðarlagi eiga ráðstöfunarrétt að veiðiheimildum þessum gegn endurgjaldi skv. 1. mgr. 8. gr. Neyti sveitarstjórn ekki ráðstöfunarréttar síns skulu veiðiheimildir framseldar til skipa og gilda ákvæði 1. og 2. mgr. 8. gr. þá um endurgjald fyrir veiðiheimildir þessar eftir því sem við á. Fáist ekki skip til veiðanna með þeim skilmálum getur stjórn sjóðsins, að fengnu samþykki
ráðherra, ákveðið lægra endurgjald eða fallið frá endurgjaldi standi sérstaklega á.``
Það er þess vegna alveg ljóst að sú hugsun er í þessu frv. að tryggja atvinnulíf byggðarlaganna og ef það gerist ekki nema með þeim hætti að veiðiheimildum sé úthlutað án endurgjalds, þá eru heimildir í lögunum til þess.
Virðulegi forseti. Það þarf ekki að segja mikið meira um þetta atriði. Þetta er alveg skýrt og ljóst og ég óska eftir því við virðulegan sjútvrh. sem hefur almennt verið að geta sér gott orð upp á síðkastið að hann fari nú ekki að skemma þann góða orðstír með því að fara í stjórnarandstöðubuxurnar sem hann notaði á síðustu þremur árum.