Verðlagsráð sjávarútvegsins

25. fundur
Miðvikudaginn 13. nóvember 1991, kl. 13:41:00 (924)

     Svavar Gestsson :
     Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli á því að til þess að þingstörf megi ganga með eðlilegum hætti, mál komist til nefnda á milli umræðna, þá er óhjákvæmilegt að stjórnarandstaðan hjálpi stjórnarliðinu. Það er ekki betur mætt en svo í dag. Ég segi já í anda góðs samstarfs hér í þinginu.