Mannaskipti í stjórn Vestnorræna sjóðsins

29. fundur
Þriðjudaginn 19. nóvember 1991, kl. 13:41:11 (1021)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
     Virðulegi forseti. Hv. þm. virðist vita meira en ég hvernig þessir menn harfa starfað. Ég held að það liggi ósköp lítið fyrir um þeirra störf á þessum vettvangi. En það breytir ekki hinu að hér er eingöngu um það að ræða að verið er að skipta um fulltrúa í nefndum sem forsrn. hefur með að gera. Og það er ákvörðun forsrh. sem auðvitað stendur.