Guðrún Helgadóttir
:
Hæstv. forseti. Ég beini máli mínu til hæstv. utanrrh. Fyrir hönd allmargra Reykvíkinga sem nú hafa fylkt liði til varnar tveimur litlum íslenskum telpum sem haldið er í eins konar gíslingu í Tyrklandi þrátt fyrir að móðir þeirra hefur forræði þeirra. Vil ég leyfa mér að spyrja hæstv. utanrrh.: Hvað hefur utanrrn. beitt sér í þessu máli?