Styrking rafdreifikerfis til sveita

31. fundur
Fimmtudaginn 21. nóvember 1991, kl. 11:12:00 (1127)

     Jón Kristjánsson :
     Virðulegi forseti. Í lok svars síns kom iðnrh. að kjarna þessa máls, að stefna ríkisstjórnarinnar í dreifingarmálum í sveitum birtist í því að ætlunin er að skera niður fjárveitingar til þessara mála um hvorki meira né minna en 54% samkvæmt fjárlagafrv. sem nú liggur fyrir. Það er staðreynd sem ráðherrann tók reyndar fram í lok máls síns og er kjarni málsins og þarf ég ekki að bæta þar miklu við.