Hjörleifur Guttormsson
:
Virðulegur forseti. Ef fullyrt er af ráðherra að farið sé með algerlega rangt mál af þingmönnum, þá er verið að bera á þá sakir, ef það er óréttmætt. Hæstv. ráðherra sagði að verkefnið sveitarafvæðing væri úr sögunni vegna þess að því væri lokið. Ég sagði ekkert um það atriði hér hver væri staða þess verkefnis. Ég benti á að 10 millj. kr. hefði verið varið til þess á yfirstandandi ári en ekki væri ekki reiknað með neinni upphæð í þetta. Væri verkefninu lokið mætti kannski verja fjármagni í styrkingu dreifikerfa sem þessu næmi. En það er ekki þannig, hæstv. ráðherra, að verkefninu sveitarafvæðing sé lokið. Þú þarft að lesa þér betur til. Undir liðnum sveitarafvæðing hefur m.a. verið stuðningur við að tengja nýjar bújarðir í sveitum, ný hús. Er því lokið? Það kann að vera að dreifiveiturnar ætli að taka það að sér, en verkefnið, eins og að því hefur verið unnið og eins og fjármagnið hefur verið notað, stendur enn.
Þetta var að bera af sér sakir, virðulegur forseti.