Hjörleifur Guttormsson
:
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrirspyrjanda fyrir að taka þetta mál upp öðru sinni í þinginu, nú í tíð nýrrar ríkisstjórnar og ég vil hvetja hæstv. forsrh. til þess að setja reglur um þessi efni. Það verður að vera hans mat hversu rúmar þær eru, hvaða svigrúm þær gefa. En núverandi ástand er auðvitað gjörsamlega óþolandi og er búið að vera það lengi, m.a. vegna þess að það hefur aukist ár frá ári nú um lengri tíma að ráðherrar hafa lagt út í áróðursherferðir á vegum sinna ráðuneyta og kostað þær af almannafé. Hér er mikið misvægi á milli aðstöðu ráðherra og almennra þingmanna og hér er spurning um að almennir þingmenn njóti einhvers sannmælis í sambandi við þingstörf og möguleika til að koma skoðunum á framfæri. (Forseti hringir.) Forseti, það er skemmst að minnast áróðursferðar núv. hæstv. utanrrh. til að boða sigurinn mikla sem hann telur sig hafa unnið. Þar hafa menn lýsandi dæmi. Og þetta gengur svo langt að ráðherrar eru farnir að auglýsa viðtalstíma í eigin kjördæmum í nafni ráðuneyta sinna.