Greiðsla kostnaðar við pólitíska fundi

31. fundur
Fimmtudaginn 21. nóvember 1991, kl. 12:21:00 (1162)

     Umhverfisráðherra (Eiður Guðnason) :
     Virðulegi forseti. Ég vona að ég hafi ekki heyrt rétt að hv. þm. Hjörleifur Guttormsson geri athugasemd við það að ráðherrar ferðist um landið, auglýsi þar viðtalstíma og færi þannig störf sín nær fólkinu í landinu sem þeir starfa fyrir. Ég vona svo sannarlega að ég hafi heyrt rangt.