Lækkun húshitunarkostnaðar

31. fundur
Fimmtudaginn 21. nóvember 1991, kl. 13:12:00 (1184)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
     Virðulegi forseti. Aðeins örstutt athugasemd í tilefni af þessu. Það er alveg rétt sem hefur komið fram að vissulega bundum við vonir við þá ákvörðun hæstv. ríkisstjórnar að

jafna húshitunarkostnað. Hins vegar stendur upphæðin í stað hvað varðar krónutölu. En ég vona að hæstv. ríkisstjórn haldi áfram á sömu braut og ég vil benda henni á að í könnun, sem gerð var í haust þar sem fólk lýsti skoðunum sínum, kom fram að stærsta málið sem Íslendingar lögðu áherslu á var jöfnun lífskjara.