Ummæli forsætisráðherra í fjölmiðlum um umræður á Alþingi um þyrlukaup

35. fundur
Miðvikudaginn 27. nóvember 1991, kl. 14:42:00 (1288)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Áður en gengið er til dagskrár vill forseti geta þess vegna þeirrar umræðu sem varð fyrr á fundinum, sem hv. 5. þm. Reykv. hóf með athugasemd um þingsköp, að forseti býður hv. 5. þm. Reykv. að hann fái að taka fyrir mál utan dagskrár kl. 4.15 í formi yfirlýsingar eða fyrirspurnar til forsrh. Umræðan fer fram samkvæmt fyrri mgr. 50. gr. þingskapa.