Ummæli forsætisráðherra í fjölmiðlum um umræður á Alþingi um þyrlukaup

35. fundur
Miðvikudaginn 27. nóvember 1991, kl. 14:45:00 (1290)

     Margrét Frímannsdóttir :
     Virðulegi forseti. Í ljósi þeirrar umræðu, sem fór fram um þingsköp fyrr í dag og þeirra funda sem við höfum átt með forseta þingsins, vil ég að það komi fram að ég tel vinnubrögð forseta þingsins í öllu þessu máli vera fullkomlega eðlileg og góð.