Ummæli forsætisráðherra í fjölmiðlum um umræður á Alþingi um þyrlukaup

35. fundur
Miðvikudaginn 27. nóvember 1991, kl. 16:46:00 (1332)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
     Virðulegi forseti. Vegna þessara ummæla og vegna ummæla sem féllu í dag, reyndar undir svokallaðri þingskapaumræðu, sem var misnotuð eins og stundum áður, vil ég taka fram að mér þótti og þykir enn að framkoma þingmannsins við umræður um þyrlumálið á mánudaginn var hafi verið þingmanninum til vansa. Og ég hafi síst tekið of sterkt til orða í þeim efnum.