Ingi Björn Albertsson
:
Hæstv. forseti. Ég þarf ekkert að segja hér nú. Þau orð sem féllu úr munni hæstv. forsrh. dæma sig algjölega sjálf. Meira um það þarf ég ekki að segja. Ekki orð. Þar með get ég vikið að þyrlukaflanum.
Hér var umræða sl. mánudag um þyrlumálin sem forsrh. sat ekki nema undir lokin, ef ég man rétt. Þar túlkaði fagráðherra stefnu ríkisstjórnarinnar í því máli. Hún var sú að fylgja eftir starfi þyrlunefndar. Á Stöð 2 í gær kemur forsrh. með allt annan tón. Í fyrsta lagi segir hann að þyrlukostur Landhelgisgæslunnar og varnarliðsins sé nægjanlegur. Í öðru lagi segir hann að til þess að herþyrlurnar uppfylli þau skilyrði sem við setjum þá megi hugsanlega breyta þeim. Það megi fara út í að breyta hertækjum til að þær uppfylli skilyrði Landhelgisgæslunnar. Í þriðja lagi sagði hæstv. forsrh. að vel kæmi til greina og ætti að skoða hvort ekki mætti fresta þyrlukaupum. Fresta þeim. Ég sé að það sígur í brúnina. Kannski man hæstv. ráðherra þetta ekki. En þetta voru hans orð. Þetta algjörlega á skjön við það sem hæstv. dómsmrh. sagði. Ég vil segja það hér og nú, talandi um þessa tvo ráðherra, að ég ber fyllsta traust og virðingu fyrir hæstv. dómsmrh. þó að

okkur greini á í þessu tiltekna máli. Hvort hæstv. forsrh. er tilbúinn að koma hér upp og skýra þá stefnubreytingu sem hann er nú að tala fyrir efast ég um í ljósi þeirra svara sem hafa fengist frá honum hér í dag og ekki bara í þessu máli.