Ingibjörg Pálmadóttir
:
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. fyrirspyrjanda fyrir að taka þetta mál upp. Það er löngu tímabært að taka upp málefni sem varðar alvarlega sjúk börn. Það þarf að koma málefnum þessa fólks þannig fyrir að fjárhagslegu öryggi fjölskyldunnar sé ekki stefnt í voða þegar alvarlegur sjúkdómur knýr dyra. Áðan kom fram að það væru ekki mörg börn sem ættu við þennan vanda að stríða en ef við tökum bara krabbameinssjúk börn, þá eru það 8--10 tilfelli sem greinast á hverju ári þannig að þetta er töluverður hópur.
Það skiptir miklu máli fyrir börnin að foreldrar geti verið sem næst þeim í veikindum þeirra. Þess vegna verður að tryggja það, því það skiptir svo miklu máli fyrir batahorfur þessara barna, að foreldrarnir geti verið hjá þeim. Og það verður að gera örlítið meira en hér er boðað og vonandi verður það gert hið allra fyrsta. Það er samfélagsins að tryggja það.