Hæstv. forseti. Ég kvaddi mér hljóðs þegar fundi var fram haldið í dag um eittleytið og innti hæstv. forseta eftir því hvort forsrh. væri væntanlegur til þingfundar. Ég hlýt að spyrja hæstv. forseta hvað hafi frést af ferðum hæstv. forsrh. þar sem mér býður í grun að nú fari senn að styttast í fundarhaldinu í dag og ég hafði lýst áhuga á því að eiga orðastað við hæstv. forsrh., hvort forseti hafi af honum fregnað eða hvort okkur beri að túlka fjarveru hans sem svo að hann hafi ekki áhuga á því að koma og sinna þingskyldum í dag þar sem mér er ekki kunnugt um að hæstv. forsrh. hafi fjarvistarleyfi. Ef forseti gæti upplýst mig á meðan ég bíð. ( Forseti: Já, forseti lét kanna það og hæstv. forsrh. var því miður upptekinn og gat ekki komið hér fyrr í dag en hafði ætlað sér að reyna að koma síðari hluta dagsins. En forseti sér að hann er ekki enn þá komin. Síðast þegar forseti lét kanna málið þá var hann upptekinn á fundi. En að sjálfsögðu getur forseti gert tilraun til að athuga hvort forsrh. getur komið áður en við ljúkum þessum fundi. Það var reyndar gert ráð fyrir því að vera hér til klukkan fjögur en klukkan er að verða hálf fimm. Það er forseta að meinalausu að halda áfram ef því er að skipta. Meiningin núna var að leyfa hæstv. fjmrh. að mæla fyrir litlu frv. sem ekki var gert ráð fyrir að miklar umræður yrðu um eða jafnvel engar, þannig að hægt yrði að koma því frv. til nefndar með atkvæðagreiðslu á næsta fundi.) Ég þakka hæstv. forseta svörin og tek þau góð og gild. Mér er fullkomlega ljóst að það er ekki á valdi hæstv. forseta að breyta því úr því að hæstv. forsrh. kemur því ekki við eða vill ekki mæta til þingfundar. Ég mun ekki heldur gera neinar kröfur um að fundur verði lengdur í dag umfram það sem samkomulag hafði áður tekist um, en hlýt þess vegna að áskilja mér rétt til að taka þetta mál upp á nýjan leik með einhverjum hætti.
En ég vil af þessu tilefni, úr því að ekki gefst færi á því, beina máli mínu til hæstv. forseta vegna þeirra ummæla sem hæstv. forsrh. lét falla um Alþingi og, með leyfi forseta, vitna í þær setningar sem beint snúa að þinginu og okkur þingmönnum sem starfsmönnum hér. Ég óska eftir því að hæstv. forseti íhugi þessi ummæli og það með hvort ástæða sé til einhverra aðgerða af hálfu forseta fyrir hönd okkar þingmanna í því sambandi.
Í morgunútvarpi í morgun sagði forsrh. m.a. í framhaldi af því að hann hafði lýst þeirri ákvörðun sinni að halda áfram að ræða opinskátt um ýmis mál, með leyfi forseta: ,,Ég ætla ekki að falla í þetta klúbbástand sem var þarna niðri í þingi.`` Fréttamaður spyr: ,,Var klúbbástand þar?`` Hæstv. forsrh. svarar: ,,Afskaplega mikið klúbbástand og er reyndar að hluta til enn. Það kom mér mest á óvart eftir að ég kom úr borgarstjórninni að svona ábyrgðarkenndin er dálítið öðruvísi og ekki alveg eins mikil eins og var til að mynda á borgarstjórnarfundum. Þetta er meira svona eins og fundur í gagnfræðaskóla eða slíku. Svona uppákomur bera það með sér að menn eru að velta því fyrir sér hvort þeir geti unnið daginn og hvort þeir geti nú verið sniðugir þennan daginn og hinn.``
Þetta er samkvæmt vélritun á hljóðupptöku af viðtali við hæstv. forsrh. í morgun, hans óbreytt orð sem var útvarpað yfir þjóðina um þessa stofnun, metnað manna til góðra verka hér innan dyra og það ástand og andrúmsloft sem hér ríkir.
Í garð okkar fyrrv. ráðherra falla þessi ummæli, með leyfi forseta, í sama viðtali: ,,Það eru þarna nokkrir ráðherrar úr fyrri stjórn sem eru með svona fráhvarfseinkenni. Og ég held að það sé út af fyrir sig eðlilegt, það þarf að gefa þeim tíma til að jafna sig á því að þeir eru ekki lengur við völdin. Þeim er það bersýnilega afskaplega óljúft og eru
órólegir og geta ekki alveg tekið þátt í venjubundnum störfum.`` Ég endurtek, ,,og geta ekki alveg tekið þátt í venjubundnum störfum. En það hlýtur að lagast. Það gerir það jafnan þegar menn hafa jafnað sig.`` --- Mér heyrist hæstv. fjmrh. hlæja og ber þá vel í veiði. Af því að mér er ekki hlátur í hug, hæstv. fjmrh. Það hefur kannski verið af öðru, betur að svo væri, ekki þessum ummælum hæstv. forsrh. Var hæstv. fjmrh. að hlæja að ummælum forsrh. um þingið? Um fyrrv. ráðherra? ( Gripið fram í: Er hlátur fjmrh. á dagskránni?) Það er eðlilegt að óska skýringa á þeim truflunum sem verða þegar menn eru að flytja mál sitt hér, hæstv. forseti, en það upplýsist þá seinna að hverju hæstv. fjmrh. hló og af hverju honum er svona kátt í geði. Það er gott að það liggur vel á blessuðum manninum, hæstv. fjmrh., á þessum björtu dögum sem nú ganga yfir þjóðina og þingið. ( Gripið fram í: Er hann kominn í klúbbinn?) Hann er væntanlega í einhverjum góðum klúbbi.
En, virðulegur forseti, mér er alls ekki hlátur í hug. Ég verð að segja það alveg eins og er að ég ætlast til þess metnaðar fyrir hönd okkar þingmanna yfir höfuð, allra sem hér sitjum, a.m.k. 62, sem hér eiga sæti á þessu Alþingi, að menn taki svona ummæli alvarlega sem látin eru falla með þessum hætti utan þings. Og það bætir ekki úr skák að hæstv. forsrh. skuli ekki sjá sóma sinn í því að mæta til þingstarfa í dag og vera maður til að standa fyrir þessum orðum.
Ég fer fram á það, virðulegur forseti, að forseti fari yfir þá umræðu sem varð í morgun í Ríkisútvarpinu --- og ég er tilbúinn til að afhenda hæstv. forseta mitt eintak með útskrift af ummælunum --- og ég óska eftir að forseti íhugi með hvaða hætti er eðlilegast að taka á þessu máli, halda því áfram hér í þinginu annaðhvort á næsta fundi eða við eitthvert það tilhlýðilegt tækifæri sem ég held að hljóti að þurfa að gefast. Það getur ekki gengið svo til að samskipti hæstv. forsrh. og Alþingis verði áfram með þessum hætti sem hér er boðið upp á.