Virðulegi forseti. Hér á undan mér var í ræðustólnum maður, hv. þm. sem hefur lagt það í vana sinn umfram aðra þingmenn að notfæra sér þann aðgang sem stjórnmálamenn hafa að blöðum og fréttastofum. Hafi einhver hv. þm. skorið sig úr þessum hópi fyrir það að vera þar svo til daglegur gestur og þrýsta þar á ef ekki hefur verið eftir sótt, þá er það sá hv. þm. sem hér lauk máli sínu áðan. Það er svo sem í samræmi við fortíð þess flokks sem hann er nú formaður fyrir að hann ætlist til þess að það sé formaður flokksins einn
sem hafi rétt til þess að fara í fjölmiðla með sínar skoðanir. Ef einhver þingmaður þarf að biðjast afsökunar á einhverju, virðulegi forseti, þá er það þessi hv. þm. sem þyrfti að biðjast afsökunar á fortíð þess flokks sem hann nú stýrir.
Ég held að þeir sem fylgjast með umræðum hér á Alþingi og hafa fylgst lengi eins og ég hef gert eigi engin dæmi um það að Alþingi hafi starfað eins og það hefur starfað á þessu hausti. Hæstv. forsrh. hefur í þeim efnum ekkert sagt annað um störf þessa þings en fólkið á götunni segir og álit þess er, m.a. fjölmiðlamanna sem fylgst hafa með þingstörfunum vegna þess að það er staðreynd að þó að Alþingi sé kosið til að setja þjóðinni lög, þá eru þingmenn hér sem hafa kvatt sér hljóðs miklu oftar og talað miklu meir og miklu lengur utan dagskrár og um þingsköp á þessu þingi heldur en þeir hafa stigið í ræðustól til að taka málefnalega á lagasetningum sem er þeirra fyrsta og síðasta hlutverk.
Virðulegi forseti. Hæstv. forsrh. hefur aldrei sagt: Ég ætla mér að ráða því sem ég vil. Hann hefur sagt: Við búum í lýðfrjálsu landi. Þar hefur hver og einn, forsrh. ekkert síður en aðrir, leyfi til skoðanafrelsis og leyfi til að láta sínar skoðanir í ljós. Og skoðanir hæstv. forsrh. á störfum þessa þings eru þær skoðanir sem almenningur hefur haft sem fylgst hefur með þingstörfum á þessu hausti.