Geir H. Haarde
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Hér hafði verið gert ráð fyrir því að funda til kl. 15 í dag. Það hefur komi fram ósk, formleg ósk svokölluð, frá hv. 8. þm. Reykn. um að gert verði hlé á þessum fundi. Ég vil út af fyrir sig ekki setja mig upp á móti því að hér verði gert hlé í um það bil hálftíma til að mönnum gefist tóm til þess að ræða saman í þingflokkum. En ég vil þá jafnframt fara fram á það að þingfundur síðar í dag verði framlengdur sem nemur því hléi. Okkur veitir ekkert af að einbeita okkur að löggjafarstörfum. Ég vek athygli á því að það eru átta mál á dagskrá þessa fundar sem enn hafa ekki komist að, þar af tvö mál frá stjórnarandstöðunni, frá tveimur hv. þm. stjórnarandstöðunnar sem sérstaklega voru sett á dagskrá að þeirra beiðni. Ég tek undir það að mál er að þessu fjasi um þingsköp linni og við snúum okkur að meginhlutverki okkar sem er löggjafarstarf í þágu þjóðarinnar.