Íslenski menningarfulltrúinn og íslensk menningardagskrá í Lundúnum

40. fundur
Þriðjudaginn 03. desember 1991, kl. 13:49:00 (1468)

     Steingrímur J. Sigfússon :
     Virðulegi forseti. Ég beini máli mínu til hæstv. utanrrh. Mig langar að spyrja hæstv. utanrrh. hvernig hafi verið háttað samráði utanrrn. við menntmrn. um ráðningu menningarfulltrúa að íslenska sendiráðinu í Lundúnum. Í öðru lagi langar mig að spyrja hvernig hafi verið háttað samstarfi utanrrn. og menntmrn. um gerð þeirrar menningardagskrár sem nefndur menningarfulltrúi hefur staðið fyrir í Lundúnum.