Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal)
:
Hæstv. forseti. Ég sagði að þessi frumvarpsgerð hefði verið flókin og ekki nema eðlilegt að einstakir ráðherrar fái tóm til þess að kynna sér efni frv. og þau álitamál sem í því eru. Með sama hætti tel ég óhjákvæmilegt að hv. þm. hafi tíma til þess að kynna sér og fara rækilega yfir frv. eftir að það hefur verið lagt fram, sem ég vonast til að verði fyrir jólin, þannig að það verði ekki afgreitt frá þinginu fyrr en á næsta ári en þó nægilega snemma til þess að framkvæmd búvörusamnings sé ekki í hættu.