Lánshlutföll Fiskveiðasjóðs til skipasmíða

42. fundur
Fimmtudaginn 05. desember 1991, kl. 11:15:00 (1606)

     Stefán Guðmundsson :
     Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir að hreyfa þessu máli. Það er ekki langt síðan við ræddum þessi mál, verkefni og vanda skipasmíða á Íslandi. Þess vegna fagna ég því að þessu máli skuli hér hreyft.
    Það er auðvitað áhyggjuefni að það er ekki aðeins fjármagnið sem fer frá okkur heldur erum við einnig að missa mikla verkþekkingu úr landinu.
    Ég kom hér upp til þess að spyrja hæstv. sjútvrh. hvort hann geti upplýst okkur um það hvenær samningar um smíði á þessum skipum voru staðfestir af stjórn Fiskveiðasjóðs.