Ólafur Ragnar Grímsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Ég ítreka þá ósk sem ég setti fram áðan að nú verði náð í hæstv. utanrrh. svo umræðan um hið fyrra mál geti haldið áfram. Það er í sjálfu sér eðlilegt að leyfa hæstv. sjútvrh. að mæla fyrir þessu frv. en það er fullkomlega óeðlilegt að umræðan hefjist síðan um frv. þannig að umræður séu slitnar hér í sundur fram og aftur vegna þess að ráðherrar mega ekki vera að því að sinna skyldu sinni og sitja í salnum og eru hlaupandi út í viðtöl við fjölmiðla og annað, sérstaklega þegar sömu ráðherrar hafa ekki getað setið kyrrir í salnum nema í fáeinar mínútur. Nú er það upplýst af einum þingmanni að hæstv. utanrrh. hefur lokið sjónvarpsviðtölum og þá óska ég eftir því, hæstv. forseti, að haldið verði áfram þar sem frá var horfið.
Við sýndum skilning á vanda utanrrh. með því að leyfa honum að vera í viðtalinu. Nú er því lokið. Ég óska eftir að náð verði í hann og hæstv. forsrh. svo hægt verði að halda áfram eðlilegum umræðum í þinginu.