Starfsmenntun í atvinnulífinu

44. fundur
Föstudaginn 06. desember 1991, kl. 10:40:00 (1662)

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (um atkvæðagreiðslu) :
     Virðulegi forseti. Þetta frv. hefur tvisvar áður verið til umfjöllunar á Alþingi og í bæði skiptin hefur því verið vísað til umfjöllunar í félmn. án athugasemda. Það er rétt að þessi athugasemd kom fram í gær og ósk um að menntmn. hefði aðgang að málinu. Ég legg áherslu á að málinu verði vísað til félmn. en ég geri út af fyrir sig ekki athugasemd við það ef félmn. óskar eftir að leita álits menntmn. á því.