Starfsmenntun í atvinnulífinu

44. fundur
Föstudaginn 06. desember 1991, kl. 10:43:00 (1664)

     Rannveig Guðmundsdóttir (um atkvæðagreiðslu) :
     Virðulegi forseti. Í tilefni af þeirri umræðu sem hefur farið fram vil ég upplýsa að ég hef átt lauslega viðræður um málsmeðferð í þessu efni við formann menntmn. og vek athygli á að ég er formaður félmn. sem samkvæmt tillögu mun fá þetta frv. til umsagnar og á jafnframt sæti í menntmn. Mér finnst mjög vel koma til greina og get lýst því yfir að félmn. mun leita álits menntmn. og hafa þá um það samráð við formann menntmn. á hvern hátt það verði gert.