Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

44. fundur
Föstudaginn 06. desember 1991, kl. 16:34:00 (1677)

     Forseti (Björn Bjarnason) :
     Forseti er sömu skoðunar og þeir tveir hv. þm. sem hafa talað að um þetta mál þurfi að fjalla og ræða og telur eðlilegt miðað við þingsköpin og þær reglur sem í þeim eru settar að það verði leitað álits fleiri nefnda en efh.- og viðskn. þótt málið verði í höndum þeirrar nefndar. Þannig verði að málinu staðið og við afgreiðslu málsins eftir ákvörðun og forsögn efh.- og viðskn.