Hjörleifur Guttormsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það eru vissulega vonbrigði að heyra þessar undirtektir hæstv. ráðherra en ég vil bæta því við að í þessum tillögum eru ákvæði sem ekki hafa neinar fjárhagslegar afleiðingar en eru hrein skólapólitísk ákvörðunarefni. Ég tel að það algert lágmark af hæstv. ráðherra að yfirfara málið með það í huga að takmarka þær breytingar sem hér er verið að gera eingöngu við það sem kallar á fjárhagsleg útgjöld og varðar fjárlög næsta árs. En það er engan veginn svo. Hér er verið að þvæla saman stefnumiðum í skólamálum og einhverjum smávegis niðurskurði sem ráðherrann telur að varði fjárlagagerð ársins 1992. Það er ekki sómasamlegt að leggja mál fyrir með þessum hætti.
Ég bendi líka á það hversu óeðlilegt það er að kveða á, eins og gert er í síðustu mgr. 3. gr. í sambandi við reglugerðarheimild til ráðuneytis, með jafnóskýrum hætti og þar er gert og þó að hæstv. ráðherra leitaðist við að svara fyrirspurn minni, þá er það lítt sannfærandi. Ég efast um að hæstv. ráðherra botni í rauninni enn þá í því hvernig eigi að beita þessu ákvæði. Það eru því áfram vinsamleg tilmæli mín til hæstv. ráðherra og auðvitað til

meiri hlutans eða stjórnarforustunnar í menntmn. að hún, í samvinnu við ráðherrann, yfirfari þessa grautargerð, vinsi úr það sem varðar fjárhagsleg málefni og ríkisstjórnin af þeim sökum telur óhjákvæmilegt að fá lagabreytingar á.