Seðlabanki Íslands

46. fundur
Mánudaginn 09. desember 1991, kl. 23:27:00 (1771)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Hæstv. viðskrh. ítrekaði að hann hefði svarað mér áðan. Hann gerði það að vísu í mjög fáum orðum en þau orð var þó ekki hægt að skilja á annan hátt en þann að þær yfirlýsingar sem aðrir hæstv. ráðherrar hafa gefið um þátt sölu ríkisfyrirtækja, sérstaklega Búnaðarbankans, í lausn efnahagsvandans og ríkisfjármála, nú strax eftir áramótin, hafi verið ótímabærar og ekki átt sér efnahagsleg rök. Öðruvísi er ekki hægt að skilja svar hæstv. viðskrh.