Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

47. fundur
Þriðjudaginn 10. desember 1991, kl. 13:41:00 (1775)

     Rannveig Guðmundsdóttir :
     Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs í forföllum formanns efh.- og viðskn. Ég vil geta þess að nefndin tók fyrir þetta mál á ný á milli 2.og 3. umr., fjallaði um málið og þær brtt. sem liggja fyrir. Afstaða nefndarinnar er óbreytt. Hún skilar ekki nýju nál. Þau málsskjöl sem var vísað til 3. umr. liggja þar með fyrir eins og lög gera ráð fyrir. Það er sem sagt engin ný afstaða af hálfu nefndarinnar til þessa máls umfram það sem kom fram við 2. umr.